Jæja þá er loksins búið að loka Gunnar inni. Fyndið í ljósi þess að ég hef aldrei verið stoppaður af löggunni áður. Ekki einu sinni í umferðareftirlit. Ég var á fylleríi með skúla og við vorum á leiðinni heim og ég ákvað að skvetta úr skinnsokknum en ég valdi ekki betri stað en við hliðina á löggustöðinni. Það var góð hugmynd. Svo kemur lögga sem var að handtaka einhvern annan og öskrar á mig að ég verði að setja hendur fyrir aftan bak og svo er ég bara járnaður! Settur í steininn í USA. Þurfti svo að fara í fingrarfaratöku og myndatöku. Sem var mjög cool, maður fær að halda á spjaldi og allt. Ég var svo lokaður inn í fangaklefa sem var ekta amerískur fangaklefi. Var þar ásamt einhverju liði. Svo svona 2 tímum síðar var ég yfirheirður og svo sleppt þegar þeir voru búnir að átta sig á því að ég var ekki hættulegur. Þarf að koma fyrir dómara og eitthvað bull, fæ eflaust einhverja sekt. Fyndnast var að þegar ég var lokaður í klefanum þá buðu þeir mer eitt símtal eins og í bíomyndunum. Ég sagði þeim bara að ég hefði ekkert við neinn að segja. Gaman að þessu.... þetta allt fyrir að hlanda í húsasundi!
Sæl að sinni.
Gunni
04. ágúst 2008 klukkan 04:55
Gunnar Sigurður Valdimarsson 9 athugasemdir
Fórum til Kanada, er ennþá of latur til að adda myndum. En ásta ætlar að gera það í dag. Kanada er alveg frábær. Fórum til Calgary sem er stórborg. Um 3 milljónir manns held ég. Hún var alveg heavy cool. Minnti mig soldið á stokkhólm. Vorum í Kanada með garunum frá studioinu sem við vinnum fyrir. Þeir voru að leita að upprennandi böndum. Við vorum bara full og vitlaus. Ég, Skúli og Ásta. Voða gaman. Fór í fyrtsa skipta í sundlaug inni í miðborg. Sundlaugin var á fimmtu hæð í 20 hæða húsi og var úti. Svo var húsið við hliðina um 60 hæðir þannig að það skyggði á sólina. Þetta var mjög spes. Lenntum ekki í teljandi vandræðum í landamæraeftirlitinu. Ásta var þó spurð spjörunum úr þegar við vorum á leiðinni aftur til USA. Við skildum ekkert afhverju. Svo kom í ljós að þeir misskildu okkur og héldu að hún væri líka að vinna í USA sem hún má ekki og þau héldu að hún væri að smygla sér inn í landið. Endaði með því að við náðum að leiðrétta þenna misskilning áður en Ástu var hennt í steininn. Svo var náttúrulega 4. júli, þjóðrembingsdagur bandaríkjanna. Slatti af flugeldum en enginn fullur á almannafæri frekar en fyrri daginn. Við vorum með Keith sem er einn gaurinn sem vinnur með okkur. Hann er 33 ára. Hann er eldhress. Hann fór með okkur niður í miðbæ. Við vorum að reyna að drekka á almannafæri en það voru bara of margar löggur og það var soldið þreytandi að troða flöskunni alltaf í vasann um leið og einhver í hópnum hóstaði hátt til marks um að það væri kögga á leiðinni til okkar þannig að við fórum á bar. Sem var fínt, samt ekkert svakalegt. Kaninn kann bara ekki að skemmta sér miðað við íslendinga. Stærsti gallinn er að það má ekki drekka á almannafæri. Ekkert fútt í því.
Annars er það að frétta að við erum komin með húsgögn. Mjög fín húsgögn úr hjálpræðishernum. Þau eru merkilega fín miðað við verð. Soldið fyndið fyrir okkur skúla að fara úr þessari miðstétta íbúð í vinnuna af því að staðurinn sem við vinnum á er algjör villa.
Mamma er að spá í að koma en það er soldið bras því að það þarf að millilenda en ef einhver af ykkur er til í að koma með henni og hjálpa henni í gegnum þetta þá væri það snilld, svo ekki sé talað um að þið fáið að sjá montana sem er geðveikt flott fylki. Miklu meira af kúrekum hérna en í flórida :).
Ekki fleira að sinni. Endilega segjið mér hvernig þið hafið það.
06. júlí 2008 klukkan 16:55
Gunnar Sigurður Valdimarsson 2 athugasemdir
Jæja þá er liðið komið til Montana sem er geðveikt. Frabært fylki nema hvað AT&T virkar ekki hérna. Sem er símafyrirtækið sem ég er hjá. Verð að skifta yfir til Verizon. Hins vegar erum við loksins komin með íbúð eftir viku á hóteli. Það er mjög góð íbúð. Betri en þessi kakkalakka íbúð á flórida. Við erum reyndar ekki með nein húsgögn þannig að við keyptum okkur uppblásin húsgögn í wal mart, uppáhalds búðinni hennar ástu. Ásta vildi endilega kaupa vindsæng sem hét twin bed en það mátti augljóslega sjá á myndinni að þetta var bara einbreitt. Eftir smá þræting ákvaðum við skúli að ásta fengi að ráða. Við komum svo heim og opnuðum kassan og viti menn. Þetta var bara fyrir einn, þannig að ásta sefur bara á gólfinu í nótt. Hún fær kannski að koma upp í ef hún verður þæg.
Studioið þar sem við skúli erum að vinna í er alveg svakalegt. Þetta er höll. Þetta er örugglega hús upp á 500 milljónir og þá er ég ekki að ýkja. Þetta er alveg bull svakalegt. Þetta hús er með öllu. Hann Brett sem er gaurinn sem við vinnum hjá býr í þessari höll líka. Ég set inn myndir við fyrsta tækifæri.
Ferðin frá Flórida til Montana var svakaleg. Tók 5 daga. Fórum fyrst frá Flórida í gegnum Georgia og svo stoppuðum við í missisippi. Hótelið sem við vorum á er á indian reservation og fjárhættuspil eru lögleg þar og þetta var 30 hæða hótel með svaka spilavíti. Við fórum öll að spila og skúli var sá eini sem vann. Hann vann 100 dollara í spilakassa. Aksturinn til missisippi tók 15 tíma.
Næst fórum við til Witchita sem er í Kansas. Aksturinn þangað tók 10 tíma. Þess má getið að í kansas er ekkert nema þá kannski helst dórótea úr galdrakallinum í oz. Við fengum reyndar ekki að hitta hana sama hvað við spurðum. Greinilega upptekin kona.
Næst var haldið til Denver sem er í Colorada þaðan sem herbergisfélaginn minn fyrrverandi Aaron er frá. Mjög flott að sjá The Rocky mountains. Þess má geta að það eru Fjallaljón inni í borginni af því að hún er svo nálægt fjöllunum. Spurning um að vera ekkert með kjötsneið í vasanum á kvöldin þar. maður yrði bara að kvöldmat fjallaljóns.
Næst var haldið til fjölkvænis fylkisins. Fullt af fólki í UTAH er gift inn í fjölkvæni. Svo eru þetta Mormónar. Þeir verða ekki temple worthy fyrr en þeir borga 20% af innkomu sinni til kyrkjunnar og þá loksins fá þeir að fara í kirkju EN EKKI FYRR. Svo þegar þeir fá að fara í kyrkju loksins þá fá þær sér nærföt sem þeir verða að vera í annars eru þeir ekki nógu heilagir til að fara í kirkju. Ekki veit ég hvort þeir fá fleiri en eitt par.
Við gistum þar í tvær nætur hjá Kjartani sem er gamall vinur pabba Skúla og hann er eldhress. Það var alveg frábært að gista hjá honum og hann sagði okkur margar sögur af mormónunum. Við gistum í útkverfi Salt Lake City.
Svo næst var förinni heitið til Montana og þá tók við meiri keyrsla. Allir löngu búnir að fá ógeð að keyra. En það var alveg frábært að keyra í gegnum montana því að þetta er geðveikt fallegt.
Svo erum við núna að fara á morgun til Kanada með vinnunni og verðum þar til sunnudags! Frábært.
SAMANLAGT KEYRÐUM VIÐ Í 54 TÍMA!!!!!!!!!!!!!!!!!! plús stopp
25. júní 2008 klukkan 03:45
Gunnar Sigurður Valdimarsson 5 athugasemdir
Jæja þá er maður búinn að útskrifast og er þú fremur undarleg tilfinning. Mér finnst eins og ég sé búinn að vera í þessum skóla í áratug af því að maður er miklu fleiri klukkutíma í skólanum en eðlilegt er. Skólastjórinn sagði á útskriftinni að við værum í 3 sinnum meiri tímum á viku en meðal háskólanemi í Bandaríkjunum. Enda eru bandaríkjamenn ræflar. Þeir eru allavegana ekki eins snar eins og íslendingar. En þetta er samt alveg mjög skrýtið. Ásta er komin sem er mjög gott og hún er bara eldhress eins og alltaf. Hún kom með milljón pakka af Bernes sósu. Sem er snilld. Svo erum við að fara að flytja til Montana á fimmtudaginn. Endilega ekki rugla þessu saman við Montreal í Kanada eins og mamma er búinn að vera að gera. Ekki það að það skipti máli en það er nú bara alls ekki sami hluturinn. Eins og kalla Dalvík, Reykjavík. Annars finnst mér rosalega skrítið að ég eigi ekki eftir að sjá þetta fólk sem ég er búinn að vera að hanga með á hverjum degi aftur. Eða ég á nú líklega eftir að hitta þetta fólk aftur á förnum vegi og ég ætla að gera hvað sem er til þess að hitti Casey aftur. Hann er meistari. Um að gera að hala hann heim til ísland, það mundi hækka meðal gáfur um alveg nokkur prósent.
Annars er ekkert að vanbúnaði að taka saman hvernig fólk stóð sig í ár.
Aaron: Pabbinn í fjölskyldunni. Nokkuð hress yfirleitt en þegar hann er ekki hress þá er hann mjög óhress. Þekkja ekki allir persónur sem baktala alla, meira að segja bestu vini sína og það eru allir löngu búnir að fatta að hann er að tala illa um alla en maður veit samt að hann meinar ekkert illt með því því að hann talar illa um all. Hann getur ekki verið illa við alla því ef svo er þá er nú frekar að vorkenna honum frekar en þeim sem hann er að baktala. Annars er aaron topp nánungi. Tuðar soldið mikið. Mæli ekki með að búa með honum. 3 stjörnur af 5 mögulegum.
Spin: eða Ryan eins og hann heitir er meistari og lætur ekki vaða yfir sig enda hefur hann drepið flesta af okkur í hópnum. Reyndar sá eini sem hefur drepið fólk sem ég þekki. Hann hefur meira að segja drepið nokkra. Mjög hressandi. Hann er söngvarinn í hljómsveitinni sem ég er í hérna. Mjög góður söngvari. Við ætlum klárlega að vinna meira saman. Spin er nokkuð merkilegur fyrir fleiri sakir en bara þær að hann er löglegur morðingji því hann er sá eini sem ég veit um sem getur farið fullir í tíma og fullur í próf en samt fengið 10. Hann fylgjist aldrei með í tíma heldur er að fýflast í tölvunni að læra eitthvað annað en samt fær hann alltaf 10. Þegar maður svo spyr hann hvernig hann fór að því að fá 10 þá segjir hann bara "I always pay attention in class" og svo brosir hann bara. Einn sá gáfaðasti sem ég hef hitt. Gull af manni. 5 af 5 mögulegum
Jason Z: Alls ekki kalla hann Jay Z þó svo að hann heiti Jason zane því hann á eftir að skalla ykkur. Hann er ekki mjög hrifinn af því. Jason er barnið í hópnum. Hann er bara 19 ára. Sem er náttúrlega bara leikskólaldur. Nei nei segji nú bara svona. Hann er hins vegar mjög lítill í sér og leitar alltaf af huggun í hjá mér sem er mjög undarlegt. Ef honum gengur illa þá kemur hann til mín og leitar sér að huggun hjá skeggjaða manninum. Hann heldur örugglega að ég sé jólasveinninn. Jason er samt held ég sá sem ég mundi treysta mest fyrir leyndamálum því að ég hef aldrei heyrt hann tala illa um vini sína við neinn, mjög góður kostur. 4 af 5
Casey: Þvílíkur meistari. Ég og Ásta fórum með honum í bíó í gær og svo þegar við vorum búnir í bíoinu þá föttuðum við að við áttum líklega ekki eftir að hittast á næstunni. Svekkjandi mjög en ég er alveg viss um að við verðum í traustu bandi. Casey er með mestu fullkomnunar áráttu sem ég hef kynnst enda var hann sá eini sem var með hærri einkun en ég í mínum bekk. Casey á pottþétt eftir að ná langt. Ég er alveg viss um að hann fær starf hjá Disney eða Pixar og á eftir að ná langt. 6 af 5 mögulegum
Shawn: Shawn var einn af þeim sem ég kynntist first og við fórum á ströndina saman 2-3 í viku og þá var maður orðinn kaffi brúnn en nú er öldin önnur. Nú er maður bara orðinn gunni hvíti allstaðar nema í andliti og handleggjum. Ég og Skúli eigum eftir að fitta vel inn hjá bóndabrúnkuliðinu í Montana. Það er alveg einstaklega gaman að fá sér í glas með Shawn. Hann er alltaf hress og alltaf til í fíflarí. 5 af 5
Jason Hawkins: Ekki skildur Steven Hawkins eða var það Hawking. Jason er spurður að þessu nánast daglega og hann hatar fátt meira en Steven Hawking því að allar halda að þeir séu skildir. Jason var semsagt hinn gaurinn sem ég kynntist fyrst hérna og fór með okkur á ströndina ófáum sinnum. Jason á eftir að verða frægur einhvernveginn. Allavega verða frægur fyrir að líta út eins og söngvarinn í incubus. Gull. 5 af 5
Svo var fullt af fleiri fólki sem ég skrifa kannski um seinna.
Sæl að sinni
guns
10. júní 2008 klukkan 13:50
Gunnar Sigurður Valdimarsson 1 athugasemd
Það var hvorki meira né minna en 40 gráðu hiti í dag... það er svona um það bil 20 gráðum of mikið ef einhver spyr mig. Mig svimaði nú bara. Annars er það að frétta að ég er búinn með skólann!!!!!!!!! Það var frábært. Það eina sem ég á eftir er að fara í próf frá Pro Tools til að gerast svakanörd :) verða certified pro tools operator frá Digidesign... það vorum bara ég og Casey sem komumst í það... það er bull erfitt. Læt ykkur vita hvort ég kemst í gegnum lokaprófið. Ef ég næ því þá fer ég á lista yfir audio engineers sem digidesign mælir með. Sem er mjög gott. Svo fæ ég fínann hatt sem stendur á Certified Operator og svo pólóbol og allan pakkann. Verð ekkert smá nördalegur.
Annars er það að frétta að ég seldi bílinn minn á 300 dollara í dag. Seldi hann í brotajárn. Sjálfskiptingin í honum fór þannig að ég sendi hann bara í bílapressuna. Ekki þess virði að vera að laga svoleiðis drasl.
Annars er það að frétta að Ásta er að koma á miðvikudaginn og svo erum við að fara til Montana eftir rúma viku. Verðum gaman. Verður samt ekkert rosalega gaman að keyra alla þessa leið.
Endilega segjið mér hvað þið eruð búin að vera að bralla :)
Guns
02. júní 2008 klukkan 22:01
Gunnar Sigurður Valdimarsson 3 athugasemdir
MINNI FÓLK Á AÐ ÞIÐ VERÐIÐ LÍKLEGA AÐ EYÐA ÚTÚR CACHE MINNINU sem sagt cookies svo að hún load-i nýju síðunni en ekki gömlu úr minninu á tölvunni ykkar.
guns
26. maí 2008 klukkan 03:50
Gunnar Sigurður Valdimarsson Engin athugasemd
Sælt veri fólkið. Nú er ég búinn að gjörbreyta útlitinu á www.nicelandproductions.com. Endilega kíkið á það og segjið mér hvort ykkur fannst gamla eða nýja betra.
Guns
26. maí 2008 klukkan 03:43
Gunnar Sigurður Valdimarsson Engin athugasemd
Ekki margt að frétta, ekki af því að það gerist ekki neitt það er meira af því að það gerist svo margt að ég get aldrei komið mér í að skrifa um það og svo loksins þegar ég hef tíma til að skrifa þá man ég ekkert hvað ég er búinn að vera að gera. En eitt er víst bílnum hans Skúla var stolið. Eða það höldum við allavega. Hann á, eða átti ölluheldur, Monte Carlo Chevrolet 1980 árgerð. Flottur bíll. Þegar hann flutti skildi hann hann eftir þar sem hann bjó og æltaði alltaf að ná í hann en var aldrei búinn að því. Hann tékkaði meira að segja á honum fyrir viku síðan. Svo fórum við í fyrradag og ná í bílinn og þá var enginn bíll að sjá. Við tékkuðum á lögreglunni því að ef bílinn er dreginn þá verður fyrirtækið sem dregur bílinn að láta lögguna vita. Löggan var ekki með neitt á skrá um bílinn þannig að honum var mjög líklega stolið. Sem er alveg magnað stuff því að löggan í USA hefur nú öðrum hlutum að sinna en stolnum bílum. T.d. eru mörð ekki óalgeng hérna.
Annars eru við svo að fara til Montana eftir mjög stuttan tíma og verður það gaman. Svo erum við að fara að fá Ástu í heimsókn sem verður æði. Við erum búinir að vera að skoða íbúðir og erum búnir að finna allt frá hjólhýsum til kofa sem minna mikið á sumarbústaði. Ekki lélegt. Veit ekki hvað við veljum en ég þruma inn mynd eins fljótt og ég get.
Sæl að sinni
Gunnar
21. maí 2008 klukkan 13:05
Gunnar Sigurður Valdimarsson 9 athugasemdir
Sælt veri fólkið, nú erum við skúli búnir að stofna fyrirtæki. http://www.nicelandproductions.com. Endilega tékkið á því. Annars ekki mikið að frétta héðan. Kem með eitthvað margra blaðsíðna blogg fljótlega. Annars er komið 100% á hreint að við erum að fara til montana, ég, skúli og ásta.
Gunni
11. maí 2008 klukkan 18:11
Gunnar Sigurður Valdimarsson 8 athugasemdir